
Tenglar og aðrir vefir
Hér má finna ýmsa vefi sem tengjast störfum
mínum og áhugamálum.
Skoða tengla á síðu Hótel Keflavík
Skoða tengla á síðu Ofnasmiðju Suðurnesja
Störf
Ég hóf ungur störf hjá Ofnasmiðju Suðurnesja sem er fjölskyldufyrirtæki stofnað af foreldrum mínum 2. febrúar 1973 en í dag er ég framkvæmdarstjóri fyrirtækisins. Sölufyrirtæki Ofnasmiðju Suðurnesja er Iðnverk Hátúni 6a í Reykjavík sem er í okkar eigu. Árið 1986 stofnuðum við fjölskyldan Hótel Keflavík en í dag er hótelið fjagra stjörnu með 70 herbergjum auk 6 herbergja á Gistiheimili Keflavík. Þá er ég starfandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Stofnandi og eigandi af undirbúningsfélaginu Gullmolinn sem hefur byggingu verslunarmiðstöðvar í miðbæ Reykjanesbæjar á stefnuskrá.
Politík, nefndir, stjórnir og fleira
Sat sem fyrsti varamaður í bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn árin 1998-2002 auk þess að gegna varaformennsku í Markaðs- og atvinnuráði þessi sömu ár, var einnig formaður Staðardagskrár 21 frá árinu 2002-2003. Sit í bæjarstjórn og bæjarráði Reykjanesbæjar og er formaður Ljósanætur í Reykjanesbæ. Er formaður í Umhverfis-og skipulagsnefnd og meðlimur í Rotarýklúbbi Keflavíkur. Formaður áhugahóps um tvöfalda Reykjanesbraut og umboðsmaður fyrir flugfélagið Harmony Airways á Íslandi og er í stjórn samtakana Betri bær í Reykjanesbæ og varamaður í stjórn Sparisjóðsins í Keflavík. Hef mikinn áhuga á uppbyggingu Samgöngumiðstöðvar Íslands ofan Reykjanesbæjar og vill finna aukin samstarfsgrundvöll við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Aðrir vefir þessu tegndu:
Alþingi
Stjórnarráð Íslands
Vefritið Tíkin
Sjálfstæðisflokkurinn á Íslandi
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Samgöngumál
Hef mikinn áhuga á samgöngumálum og er í dag formaður áhugahóps um örugga Reykjanesbraut. Hef í starfi mínu átt mjög góð samskipti við Samgönguráðuneytið, Vegagerð Ríkisins og Umferðarstofu. Árið 1995 átti ég þátt í að koma á reglulegum flugsamgöngum milli Íslands og Kanada með flugfélaginu Canada 3000 og síðan árið 2002 þegar HMY hóf flug til Íslands með leyfi Flugmálastjórnar. Þá er vefur samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar mjög skemmtilegur.
Aðrir vefir þessu tengdu:
Rannsóknarnefnd umferðarslysa
Rannsóknarnefnd flugslysa
Rannsóknarnefnd sjóslysa
Ferðamál
Hótel Keflavík var stofnað af fjölskyldunni 17. maí 1986 en þeim tíma var fátt um fína drætti í ferðamálum á Reykjanesi. Í dag er Reykjanes að vera eitt öflugasta ferðamannasvæði á Íslandi. Mörg öflug fyrirtæki eru leiðandi í Íslenskri ferðaþjónustu s.s. Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Bláa Lónið en auk þeirra má nefna SBK, Kaffitár, og veitingastaðina Jia, Jia á Hótel Keflavik, Duus Café, Soho, Rána, Stapann, Langbest, Pizza 67, KFC, Dominos Pizza og marga fleiri. Reykjanes.is er ferðaþjónustu- og upplýsingavefur um ferðaþjónustu og sveitarfélögin á Reykjanesi en þau eru Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Vogar, og Garður.
Aðrir vefir þessu tengdu:
Samtök ferðaþjónustunnar eru hagsmunasamtök allra fyrirtækja sem starfa í ferðaþjónustu.
Ferðamálaráð annast skipulagningu og áætlanagerð um íslensk ferðamál.
Umhverfismál
Sem formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar hef ég tækifæri til að hafa áhrif í umhverfis og skipulagsmálum bæjarins en sá þáttur hefur ávalt verið mér mjög hugleikinn. Lýsing Bergsins var m.a. tilkomin vegna leitunar minnar af fallegum stöðum í umhverfi Reykjanesbæjar.
Reykjanes
Reykjanes.is er ferðaþjónustu- og upplýsingavefur um ferðaþjónustu og sveitarfélögin á Reykjanesi. Á vef Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum má finna þau sveitarfélög sem eru á þessu landsvæði og ýmsar upplýsingar sem viðkoma sveitarfélögunum í þessum landshluta en þau eru Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Vogar, og Garður.
Vikublaðið Víkurfréttir er gefið út á vefnum og heldur úti lifandi fréttavef um málefni Reykjaness. Önnur blöð eru Tíðindin og Innsýn en þau er ekki á vefnum.
Einstaklingavefir
Margir einstaklingar hafa nýtt sér tækifæri vefsins og sett upp sinn vef eins og þennan. Hérna eru nokkrir vefir sem ég hef skoðað og haft gaman af.
Vefur samgönguráðherra Sturlu Böðvarssonar er mjög fróðlegur - www.sturla.is
Vefur dómsmálaráðherra Björns Bjarnasonar hefur fengið viðkenningu sem besti vefur einstaklings - www.bjorn.is
Heimasíða bæjarstjórans á Ísafirði er skemmtilegur - www.haddi.is
Þingmaður framsóknarmanna í Reykjanesbæ, Hjálmar Árnason, heldur úti sinni síðu - www.hjalmar.is