Kæru ættingjar, vinir og góðir samstarfsmenn.
Ég vil byrja á að þakka ykkur öllum fyrir að gera mér og fjölskyldu minni þá ánægju að koma hér í þetta afmælishóf og það er vissulega gaman að sjá hve margir hafa séð sér fært að mæta hingað í kvöld.
Eina skilyrðið sem ég set hér í kvöld er að allir borði mikið og skemmti sér sem best. Hér verða ýmis tónlistaratriði og aðrar uppákomur og vil ég byrja á að þakka öllum vinum og vandamönnum fyrir þeirra aðstoð í að gera þetta kvöld að veruleika.
Þegar maður er komin á þennan aldur er víst best að láta aðra um stjórn og hafa þau Jón Marínó Sigurðsson, frístundarfulltrúi og Lilja Karen Steinþórsdóttir dóttir mín tekið að sér að vera kynnar hér í kvöld og bíð ég þeim velkomin á svið.
Ég ætla svo eins og þið hin að setjast niður á mitt borð og njóta kvöldsins.