Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíðin okkar í Reykjanesbæ er án efa orðin ein stærsta og glæsilegasta bæjarhátíð landsins en hún nær nú yfir fjóra daga. Ljósanótt er skemmtilegur tími þar sem bæjarbúar og gestir þeirra skemmta sér saman en hátíðin í fyrra tókst með eindæmum vel. Litlu fræi var sáð í góðan jarðveg bæjarbúa enda hefur útkoman verið með miklum ólíkindum. Fyrir það erum við stolt og bæjarbúum þakklát. Viðtökur bæjarbúa hafa verið frábærar frá upphafi þar sem íbúar voru tilbúnir að taka þátt og leggja sig fram í að gera eitthvað nýtt og spennandi. Þetta viðhorf og samstaða er einfaldlega að skila sér tilbaka í þeim fjölda sem sækir Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Í ár er lögð áhersla á viðamiklar uppákomur alla dagana, þó laugardagurinn verði áfram aðalhátíðardagurinn. Í mínu huga er það menning að hittast og sjá mannlífið í kringum sig. Í þannig umhverfi fá listviðburðir eins og málverkasýningar, tónlist, leiklist og fleira að njóta sín auk þess að kalla fram nýja upplifun hjá gestum og gangandi. Nýr hátíðarfáni Reykjanesbæjar hefur verður tekinn í notkun á þessari Ljósanótt. Hann er notaður til kynningar á hátíðinni auk þess sem stjórnendur fyrirtækja og íbúar bæjarins eru hvattir til að flagga á eigin fánastöngum yfir hátíðardaganna.
Segja má að hátíðin sé eins konar uppskerutími bæjarins þar sem framkvæmdir ársins, bæði hjá einstaklingum og bæjarfélaginu, taka á sig endanlega mynd. Okkur íbúum Reykjanesbæjar er það því sérstök ánægja að bjóða gesti velkomna í heimsókn á Ljósanótt nú fjórða sinn.
Það er von okkar að þú njótir þín vel á Ljósanótt og upplifir þá menningu og skemmtun sem við höfum saman fram að færa.
F.h. Ljósanæturnefndar,
Steinþór Jónsson,