Okkur eigendum og starfsmönnum Hótel Keflavík hlakkar mikið til jólanna og jólaundirbúningsins eins og öðrum landsmönnum. Eitt af því sem okkur finnst þó mest gaman er að taka á móti gestum alls staðar af landinu sem nú í desember þiggja fría gistinu í tilefni af markaðsátaki hótelsins í Reykjanesbæ. "Það er sælla að gefa en þiggja." segir einhvers staðar og það höfum við svo sannarlega fengið að upplifa síðustu þrjú ár á hótelinu. Glaðari gesti höfum við ekki fengið en jólagestina okkar sem hafa undantekningarlaust átt góða daga í bæjarfélaginu okkar. Þeir hafa heimsótt söfn, farið í sund, verslað jólagjafir og borðað góðan mat á veitingastöðum bæjarins.
Það er gaman að gesta styrkt verslun og þjónustu í Reykjanesbæ á þennan hátt og sýna um leið hvað okkur þykir vænt um bæinn okkar og erum stolt af honum. Við bjóðum allt að 500 gistiherbergi í desember en hugmyndin gengur einfaldlega út að það að þeir gestir sem koma frá öðru bæjarfélagi í verslunarferð til Reykjanesbæjar í desembermánuði geta notað greiðslukvittanir eða reikninga fyrir viðskiptum á allri þjónustu eða verslun í Reykjanesbæ sem greiðslu fyrir glæsi gistingu - sem sagt gist án aukagjalds í boði okkar. Við vonum að þetta framlag komi jólaverslun í bænum okkar vel og okkur öllum í gott jólaskap.
Síðustu ár hefur átt sér stað mjög jákvæð þróun í miðbænum þar sem samstaða fyrirtækja hefur aukist, en það var einmitt grundvallarmarkmiðið með þessu framtaki. Við höfum skapað trú á okkur innan bæjarins og hefur það kristallast í stofnun samtakanna Betri bær, en markmið þeirra er að vinna að sameiginlegum hagsmunum fyrirtækjanna í bænum í samstarfi við bæjaryfirvöld, félagssamtök og alla þá sem hafa áhuga á að gera góðan bæ betri.
Bærinn okkar stendur framarlega á mörgum sviðum s.s. í íþróttum, tónlist, skólamálum svo eitthvað sé nefnt og höfum við alla burði til að vera til fyrirmyndar í verslun og þjónustu fyrir bæjarbúa og gesti. Aukning á verslun í Reykjanesbæ verður ekki til eingöngu með vilja neytanda. Við sem neytendur, verslunareigendur og bæjarfélag verðum að standa saman. Við eigum að auglýsa bæinn okkar á jákvæðan hátt og sú auglýsing þarf ekki alltaf að kosta mikla fjármuni. Með vilja og áræðni má ná mjög langt. Við verðum að vekja okkur sjálf til umhugsunar um hvað gott er að versla heima.
Við sendum bæjarbúum öllum óskir um gleðilega hátíð og vonum að sem flestir upplifi ánægjulegar stundir í jólaverslun í Reykjanesbæ.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri á Hótel Keflavík