Að sjá hlutina í öðru ljósi.
[Annað] - 30.05.2005 -
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, Ólafur Thordersen er vaknaður til lífsins og fer mikinn í síðasta tölublaði Víkurfrétta og segir þar m.a. það vera skyldu sína að upplýsa bæjarbúa um raunverulega stöðu bæjarins. Ekki vantar upphrópunina í fyrirsögnina sem vísar í rekstartap bæjarins ÁN fjármagnstekna, söluhagnaðar og óreglulegra liða. Og þar sem Ólafur veit að flestir lesa ekki nema fyrirsögnina eða fyrstu línur greina hans er raunveruleg niðurstaða ársreikinga ekki kynnt fyrr en síðar. Óli er þekktur fyrir ágætis húmor og sér hlutina oft í öðru ljósi en við hin – það gerir hann líka núna.
Við sem höldum um stjórnvölinn á Reykjanesbæ höfum á síðustu árum lagt metnað okkar í glæsilega uppbyggingu á öllum sviðum bæjarfélagsins. Þetta vita flestir og eru sammála um að vel hafi til tekist enda fjölgar íbúum og atvinnutækifæri aukast þrátt fyrir mikinn samdrátt hjá Varnaliðinu á sama tíma. En um leið og fólk fagnar uppbyggingu og þakkar aukna þjónustu er eðlilegt að þetta sama fólk spyrji hvernig þetta sé allt hægt og hvað þetta kosti nú allt saman. Og ekki stendur á fulltrúum minnihlutans að útskýra það á sinn hátt þó þeir viti mikið betur.
Í þessu samhengi langar mig í stuttu máli að útskýra einn þátt í niðurstöðu rekstarreiknings sveitarfélaga sem ekki er eins hjá sveitarfélögum og hjá almennum fyrirtækjum þ.e. gjaldfærsla uppbyggingar og lýfeyrisskuldbindinga. Til að auka tekjur sveitarfélags þarf fleiri útsvarsgreiðendur þ.e. fleiri íbúa. Þetta hefur okkur tekist og framtíðarhorfur lofa góðu. Á síðusta ári voru framkvæmdir vegna gatnagerðar og atvinnuuppbyggingar fyrir hundruð milljóna króna gjaldfærðar í reikningingum bæjarins sem og lýfeyrisskuldbindingar sem saman mynduðu töluvert hærri tölu en rekstartap síðasta árs. Lýfeyrisskuldbindingarnar væru skuldfærðar í efnahagsreikning fyrirtækis en ekki gjaldfærðar enda um framtíðarútgjöld að ræða. Í venjulegu fyrirtæki, eins við Óli rekum, hefðu þessar framkvæmdir verið eignfærðar og lýfeyrisskuldbindingarnar ekki gjaldfærðar til framtíðar og fyrirtækið því sýnt góðan hagnað á síðasta rekstarári.
Eignarstaða bæjarfélagsins er góð og með stórhuga framkvæmdum sjálfstæðismanna eru tekjur að aukast sem tryggja munu rekstarhagnað bæjarfélagins til framtíðar. Láttum ekki þróttlausar fyrirsagnir minnihlutans stöðva framgang og bjartsýni.
Til baka
|