Steini.is - Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér
Velkomin á heimasíðuna mína.
Hér má finna ýmislegt efni tengt störfum mínum, vinnu, pólitík, fjölskyldu, áhugamálum
og hugleiðingum.

Heimasíðuna hugsa ég fyrst og fremst til að
halda utan um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt en bið um leið öllum sem þess óska að nýta sér efnið, vefina og síðuna til að senda mér tölvupóst.

ForsíðaVelkominPistlarGreinarFréttirRæðurÆviágripMyndirFyrirspurnirTenglarSumarhús

Skoða reglulega
  Víkurfréttir
  Morgunblaðið
  Vísir.is
  Sparisjóðurinn
  Leit.is
  xdreykjanes.is
  Símaskrá

Hlusta helst á
  Tónlist.is
  Létt 96,7
  Bylgjan
  Rás 2
  RUV
  FM 95,7
  Saga

Horfi á
  RÚV
  Stöð 2

Heimasíður
  Fjölskyldan
  Hótel Keflavík
  Gistiheimili
  Flugmál
  Pólitík
  Reykjanesbraut   & Samstaða
  Reykjanesbær
  Ljósanótt
  KefJet
  Gullmolinn
  Sumarhús

Tenglar
  Reykjanes.is
  Ferðamálaráð
  Travelnet
  Randburg
Meira 

Verkefni dagsins
  Betri bær
  Verslun og
  þjónusta
  flugstöð
  Vestnorden
  Samgöngu- 
  miðstöð íslands
  Blue Diamond
 




Steini.is » Sameinaðir stöndum vér - sundraðir föllum vér

Steinþór Jónsson er einn þeirra sem stóð að borgarafundinum um tvöföldun Reykjanesbrautar. Í bréfi sínu gerir hann grein fyrir hver næstu skref áhugahóps um örugga Reykjanesbraut verða.



Kæru Suðurnesjamenn,
Til hamingju með borgarafundinn í Stapa þann 11. janúar s.l. Fyrstu orðin sem komu upp í hugann eftir fundinn er samheldni og þakklæti en samkvæmt okkar upplýsingum var hér um að ræða einn stærsta borgarafund fyrr og síðar og þurftu margir frá að hverfa. Það eitt og sér styður málefnið gríðarlega og sýnir einstakan samhug okkar Suðurnesjamanna þegar á þarf að halda.
Sérstakar þakkir sendum við til allra fundargesta sem svo vel studdu ályktun fundarins. Vilji ráðamanna til framgangs ályktunar fundarins er mikill, það er ljóst af góðum viðbrögðum eftir fundinn. Okkar bestu þakkir sendum við Sigmundi Erni fyrir frábæra fundarstjórn og Páli Ketilssyni og starfsfólki hans á Víkurfréttum fyrir fagmannlega aðstoð. Skipulag fundarins og annar undirbúningur gekk vonum framar og færi ég kraftmiklum undirbúningshóp mínar bestu hamingjuóskir og þakkir fyrir frábæran árangur.
Kæru Suðurnesjamenn, nú þarf að halda vöku sinni því stórt skref hefur vissulega náðst með samstöðu fundarins en málinu þarf að fylgja vel eftir. Á næstu vikum mun áhugahópurinn halda fundi með samgöngumálaráðherra og þingmönnum en samhliða því vinna að bættri umferðarmenningu á Reykjanesbraut. Til að minna á ábyrgð ökumanna mun hópurinn m.a. í samstarfi við lögregluyfirvöld dreifa, í næstu viku, eitt þúsund "bílabænum" sem minna á ábyrgð okkar ökumanna.
Ánægjulegt var að sjá alla sýslumenn svæðisins á fundinum en þeirra bíður stórt verkefni í eftirlitsskyldu sinni á Reykjanesbraut meðan núverandi ástand varir og mun áhugahópurinn fylgjast vel með því starfi og greina frá árangri þegar frá líður. Nú er mikilvægt að allir leggist á eitt um að stuðla að bættri umferð á Reykjanesbraut.

Lifið heil.

F.h. áhugamanna um örugga Reykjanesbraut,
Steinþór Jónsson.



Pistlar
  03.11.2005
Spjallþráður..
  30.05.2005
Svæðinu til ..
  30.05.2005
Að sjá hluti..
Meira 

Dagbók
  28.03.2005
Páskaferð me..
  06.03.2005
Flott hjá My..
  17.02.2005
Aspen - godu..
Meira 

Greinar
  30.08.2007
Ljósanótt se..
  02.04.2006
Sterk staða ..
  22.03.2006
Sókn er best..
Meira 

Fréttir
  01.04.2009
Öryggisvörðu..
  24.02.2009
Lyklarnir af..
  22.12.2008
FS - 60 neme..
Meira 

Ræður
  20.10.2008
Ræða við vís..
  15.04.2007
Ræða Samgöng..
  05.11.2005
Lundinn 2005
Meira 


Steinþór Jónsson  -  Bragavöllum 7  -  230 Keflavík, Reykjanesbæ  -  Sími: 696-7777 - steini@kef.is