Steini.is - Tvöföldun Reykjanesbrautar boðin út; en hvenær á að byrja?
Velkomin á heimasíðuna mína.
Hér má finna ýmislegt efni tengt störfum mínum, vinnu, pólitík, fjölskyldu, áhugamálum
og hugleiðingum.

Heimasíðuna hugsa ég fyrst og fremst til að
halda utan um alla þessa þætti á aðgengilegan hátt en bið um leið öllum sem þess óska að nýta sér efnið, vefina og síðuna til að senda mér tölvupóst.

ForsíðaVelkominPistlarGreinarFréttirRæðurÆviágripMyndirFyrirspurnirTenglarSumarhús

Skoða reglulega
  Víkurfréttir
  Morgunblaðið
  Vísir.is
  Sparisjóðurinn
  Leit.is
  xdreykjanes.is
  Símaskrá

Hlusta helst á
  Tónlist.is
  Létt 96,7
  Bylgjan
  Rás 2
  RUV
  FM 95,7
  Saga

Horfi á
  RÚV
  Stöð 2

Heimasíður
  Fjölskyldan
  Hótel Keflavík
  Gistiheimili
  Flugmál
  Pólitík
  Reykjanesbraut   & Samstaða
  Reykjanesbær
  Ljósanótt
  KefJet
  Gullmolinn
  Sumarhús

Tenglar
  Reykjanes.is
  Ferðamálaráð
  Travelnet
  Randburg
Meira 

Verkefni dagsins
  Betri bær
  Verslun og
  þjónusta
  flugstöð
  Vestnorden
  Samgöngu- 
  miðstöð íslands
  Blue Diamond
 




Steini.is » Tvöföldun Reykjanesbrautar boðin út; en hvenær á að byrja?

Mánudagur 7. febrúar 2005

Tvöföldun Reykjanesbrautar boðin út; - en hvenær á að byrja?

Í kvöld var haldinn borgarafundur í Reykjanesbæ, um það brýna verkefni að ljúka við að tvöfalda Reykjanesbrautina. Ég var mættur þar fyrir hönd Frjálslynda flokksins, ásamt samþingflokksmönnum mínum þeim Guðjóni A. Kristjánssyni og Gunnari Örlygssyni. Grétar Mar Jónsson skipstjóri og varaþingmaður Frjálslynda flokksins var einnig á fundinum. Til viðbótar voru til staðar flestir, ef ekki allir, þingmenn Suðurkjördæmis, fyrrverandi þingmenn, varaþingmenn, fomaður Samgöngunefndar Alþingis og þrír ráðherrar!

Var hér ólíku saman að jafna og á síðasta borgarafundi um samgöngumál sem ég tók þátt í, en það var rúmlega 500 manna fundurinn sem haldinn var á dögunum úti í Vestmannaeyjum um samgöngumál Eyjanna. Af fólki með störf á Alþingi á starfsferilsskránni, voru þá bara mættir ég og Árni Johnsen. Í kvöld mættu bæði ég og hann eins og venjulega, en líka allir hinir. Gott hjá þeim og gleðilegt að áhugaleysið á málefnum Vestmannaeyja hefur ekki smitast yfir á Suðurnesin.

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var að sjálfsögðu mættur með aðstoðarmanni sínum, ráðuneytisstjóra sínum og Vegamálastjóra. Sturla hóf fundinn með því að halda ræðu þar sem hann lýsti því yfir að það hefði kostað 1,1 milljarð að tvöfalda þann kafla Reykjanesbrautarinnar sem opnaður var í sumar. Restin að sunnan, eða réttara sagt vestanverðu, til Reykjanesbæjar er áætlað að kosti um tvo milljarða. Ráðherrann tilgreindi hins vegar ekki hvað það myndi sennilega kosta að tvöfalda brautina að austanverðu, að og í gegnum Hafnarfjörð, Garðabæ og Kópavog. Hins vegar lýsti hann því yfir að allt verkið yrði nú boðið út í vor í einu lagi og færi hraði framkvæmda eftir niðurstöðu útboðanna. Uppskar hann mikinn fögnuð fundarmanna fyrir það, enda sjálfsagt fagnaðarefni.

Hjá mér vöknuðu hins vegar ýmsar spurningar sem ég tilgreindi nánar í ræðum mínum á fundinum. Þegar ég gekk á Sturlu og spurði hvað hann meinti með "öllu verkinu", kom í ljós að hann átti við 10 kílómetra kaflann að vestanverðu til Reykjanesbæjar sem áætlað er að kosti um tvo milljarða. Ekki restina af Reykjanesbrautinni hinum megin við tvöfalda kaflann sem er í dag.

Aðspurður vildi Sturla hvergi tilgreina neinar dagsetningar varðandi verkið. Hvorki hvenær byrja ætti á því, né hvenær hann teldi að því yrði lokið. Hann talaði einnig mjög óskýrt um hvar hann ætlaði að finna fé í framkvæmdina, en nú er verið að ljúka við endurskoðun samgönguáætlunar þar sem talað er um að skera vegafé niður um sex milljarða á næstu þremur árum. Sturla sagði einungis að til væru "verulegir fjármunir" sem ætlaðir væru í Reykjanesbraut, en gat þegar ég spurði hann um upphæðir þess, hvergi nefnt neina tölu þar um.

Upp úr stóð að eina haldbæra niðurstaða þessa fundar er silfurlituð skófla sem afhent var samgönguráðherra af áhugamannahópi um tvöföldun Reykjanesbrautar og loforð ráðherrans um að bjóða verkið út í vor!

Nú gildir því að halda ráðherranum við efnið og sjá til þess að hann klári stafrófið, nú þegar hann er búinn að segja A.

Að hann drífi útboðið af, og sýni það og sanni í verki að peningarnir sem hann talaði um séu til, þannig að hafist verði handa við að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautar til vesturs strax í sumar.

Það er gríðarlegt hagsmunamál fyrir Suðurnes að þessi framkvæmd sé kláruð. Fullnægjandi og öruggt vegasamband þessa svæðis við höfuðborgarsvæðið skiptir mjög miklu máli fyrir samkeppnishæfni þess inn í framtíðina, og þegar framkvæmdir við tvöföldun brautarinnar eru komnar jafn langt og raun ber vitni er það hrein fásinna að klára ekki verkið.

Það átti reyndar aldrei að hætta í sumar leið.




Pistlar
  03.11.2005
Spjallþráður..
  30.05.2005
Svæðinu til ..
  30.05.2005
Að sjá hluti..
Meira 

Dagbók
  28.03.2005
Páskaferð me..
  06.03.2005
Flott hjá My..
  17.02.2005
Aspen - godu..
Meira 

Greinar
  30.08.2007
Ljósanótt se..
  02.04.2006
Sterk staða ..
  22.03.2006
Sókn er best..
Meira 

Fréttir
  01.04.2009
Öryggisvörðu..
  24.02.2009
Lyklarnir af..
  22.12.2008
FS - 60 neme..
Meira 

Ræður
  20.10.2008
Ræða við vís..
  15.04.2007
Ræða Samgöng..
  05.11.2005
Lundinn 2005
Meira 


Steinþór Jónsson  -  Bragavöllum 7  -  230 Keflavík, Reykjanesbæ  -  Sími: 696-7777 - steini@kef.is