Flott hjá Myllubakka - árshátíð í toppklassa.
[Annað] - 06.03.2005 -
Sönn gleði er alvörumál segir einhvers staðar!
Að halda góða árshátíð er eitt af þeim verkum sem krefst mikils af þeim sem hana halda. Þátttakendur undirbúa sig af að bestu getu og hlakka síðan til að hitta vini, kunningja og starfsfélaga á nýjum stað þar sem gleði og ánægja er aðalmarkmiðið. Svo var eins í gærkvöldi þegar árshátíð Reykjanesbæjar var haldin hátíðleg í glæsilegum Stapanum í Njarðvík eftir mikinn undirbúning starfsmanna Myllubakkaskóla með þau Brynju og Sigga í forsvari.
Húsið opnaði klukkan sjö með góðum og fallega lituðum fordrykk í anddyrinu. Borðin voru þétt í salnum, enda von á metþáttöku, og falleg yfir að líta. Reykjanesbæjarvinurinn, Helga Braga, var kynnir og fór vel með embættið eins og henni er von og vísa. Eftir frábæran mat hjá Halla og hans fólki tók hver skemmtunin við af annari en kennarar og starfsfólk Myllubakka hófu leikinn með skemmilegu atriði úr Moulin Rouge. Gott atriði sem fékk fólk í réttan gírinn strax í upphafi. Síðan tók Davíð Ólafsson og Stefán nokkur lög með gamansömu ívafi. Voru þeir klappaðir upp nokkrum sinnum enda um frábæra skemmtikrafta að ræða. Þá birtust töffararnir Raggi Bjarna og Þorgeir Ástvaldsson með sitt "show" og tók salurinn vel undir og þá sérstaklega þegar lögin "Vorkvöld í Reykjavík" og "Ég fer í fríið" voru sungin af þessum heiðursmönnum. Helga Braga endaði síðan kynningu sína með magadansi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Það var síðan hljómsveitin "Á móti Sól" sem lék fyrir dansi og er greinilegt að næsta verkefni okkar í pólitíkinni verður að stækka við Stapann enda dansgólfið yfirfullt frá fyrsta lagi hljómsveitarinnar.
Það er svo margt gott að gerast í Reykjanesbæ og með skemmtilegu mannlífi og hressu fólki sem leggur sitt að mörkum, eins og við upplifðum á árshátíðinni, verður lífið bara skemmtilegara.
Ég vil fyrir mína hönd og eiginkonu minnar þakka Myllubakka fyrir frábæra skemmtun og góða árshátíð. Undirbúingur og efnisval var með miklum ágætum og mun Holtaskóli eiga ærið verkefni framundan með undirbúning fyrir næstu árshátíð að ári.
Takk fyrir mig.
Til baka
|